Veftré Print page English

Þýskaland og Hringborð Norðurslóða


Forseti á fund með sendiherra Þýskalands Thomas Meister um þátttöku Þýskalands í þingi Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið verður í Reykjavík 16.-18. október. Fundurinn er haldinn í kjölfar á bréfi frá kanslara Þýskalands Angelu Merkel og ákveðið hefur verið að í dagskrá þingsins verði sérstök kynning á framlagi Þýskalands til Norðurslóða, vísindarannsóknum og stefnumótun sem og áherslum í tengslum við efnahagsþróun og baráttu gegn loftslagsbreytingum.