Veftré Print page English

Leikjaráðstefnan Slush PLAY


Forseti flytur ávarp í upphafi leikjaráðstefnunnar Slush PLAY sem haldin er í Gamla bíó en að henni standa m.a. Klak Innovit og fleiri íslenskir aðilar í samstarfi við finnsku Slush ráðstefnuna sem er meðal stærstu tækniráðstefna í Evrópu. Í ávarpinu ræddi forseti þróun leikja- og upplýsingatækninnar á Íslandi og hvernig nýsköpun á þessu sviði hefði nýtt sér ýmsa kosti íslensks samfélags. Reynslan af glímunni við fjármálakreppu undanfarinna ára væri einnig dýrmætur reynslusjóður og hefði fjöldi íslenskra fyrirtækja náð árangri á þessu sviði á nýliðnum árum.