Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til forseta Nepals


Forseti sendir samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni til dr. Ram Baran Yadav forseta Nepals vegna hörmunganna sem hinir hrikalegu jarðskjálftar hafa haft í för með sér. 

Hugur okkar og samúð séu hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið, sem og hjá hinum slösuðu og öllum þeim sem enn leita ættingja og nágranna í rústunum.

Jarðskjálftarnir séu áminning til allra jarðarbúa um kraftinn sem býr í iðrum jarðar og mótar örlög þjóða, kraftinn sem um aldir hefur verið ríkur þáttur í lífi fólksins sem byggir hin tignarlegu en örlagaþrungnu svæði Himalayafjalla.

Íslendingar þekki af eigin raun glímuna við eldfjöll og jökla, afleiðingar jarðskjálfta og snjóflóða og því tökum við af heilum huga höndum saman með öðrum þjóðum við að efla hjálparstarf sem verði æ brýnna með hverjum degi.