Afmæli Danadrottningar
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú sitja í kvöld, miðvikudaginn 15. apríl, hátíðarkvöldverð í Kristjánsborgarhöll í tilefni af 75 ára afmæli Margrétar II Danadrottningar. Hátíðarkvöldverðinn sækja einnig aðrir þjóðhöfðingjar frá Norðurlöndum og víðar úr Evrópu.
15. apríl 2015