Veftré Print page English

Samstarf við Fletcher skólann


Forseti á fund með James Stavridis rektor Fletcher skólans, en hann var áður flotaforingi í Landhelgisgæslu Bandaríkjanna, US Coast Guard. Rætt var um ákvörðun Fletcher skólans um að efla rannsóknir og samstarf í málefnum Norðurslóða og nýta þátttöku í Hringborði Norðurslóða í þessu skyni. Fundinn sátu einnig Ari Kristinn Jónsson og Halla Hrund Logadóttir og gerðu grein fyrir samstarfi Háskólans í Reykjavík við Fletcher skólann.