Veftré Print page English

Rannsóknasamstarf á Norðurslóðum


Forseti á fund með Lassi Heininen, prófessor og stjórnarformanni Rannsóknarþings Norðurslóða, Þorsteini Gunnarssyni hjá RANNÍS og Guðrúnu Rósu Þórsteinsdóttur frá Háskólanum á Akureyri um rannsóknasamstarf á Norðurslóðum, ný verkefni á þessu sviði, fyrirhugað málþing um norræna-kínverska samvinnu sem haldið verður í Sjianhæ sem og þing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í október.