Veftré Print page English

Kínverskir þátttakendur í Fanfest


Forseti tekur á móti hópi kínverskra þátttakenda í Fanfest sem skipulögð er á vegum CCP. Rætt var um útbreiðslu EVE Online og annarra tölvuleikja í Kína og uppbyggingu CCP í landinu en forseti heimsótti verkstöð fyrirtækisins í Sjanghæ árið 2010. Einnig greindu kínversku þátttakendurnir frá reynslu sinni af Fanfest og dvöl á Íslandi.