Hringborð Norðurslóða
Forseti á fund með Dagfinni Sveinbjörnssyni og Sigríði Blöndal, skipuleggjendum Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, um dagskrá þingsins sem haldið verður í Reykjavík í október, alþjóðlega þátttöku í því sem og vaxandi áhuga á málefnum Norðurslóða. Einnig var fjallað um niðurstöður samráðsfundarins um Himalajasvæðið sem haldinn var í Bútan í febrúar.