Vestnorræna ráðið
Forseti á fund með Unni Brá Konráðsdóttur alþingismanni sem í fyrra var formaður Vestnorræna þingmannaráðsins og er nú formaður Íslandsdeildar ráðsins. Rætt var um vaxandi starfsemi ráðsins og aukinn áhuga á samvinnu Íslands, Færeyja og Grænlands, t.d. á sviði atvinnulífs, ferðaþjónustu og heilbrigðismála sem og að samstarf þjóðanna þriggja yrði eflt með sérstöku tilliti til vaxandi mikilvægis Norðurslóða en Vestnorræna ráðið skipulagði sérstaka málstofu á þingi Arctic Circle í fyrra.