Veftré Print page English

Stefnumótun á Norðurslóðum


Forseti situr morgunverðarfund í Québec sem Philippe Couillard, forsætisráðherra fylkisins, boðar til þar sem einkum var rætt um þátt vísinda og rannsókna í stefnumótun á Norðurslóðum. Fundinn sátu einnig framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Dagfin Høybråten, og fulltrúar háskóla og rannsóknarstofnana í Québec.