Veftré Print page English

Samstarf við Indland


Forseti á fund með Arun Narendhranath og Sumeet Bhasin, stjórnendum rannsóknarstofnunarinnar Public Policy Research Centre sem vinnur að stefnumótun fyrir hina nýju ríkisstjórn á Indlandi. Rætt var um þróun samstarfs á Norðurslóðum, en Indland á nú áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu, árangur og niðurstöður samráðsþingsins um Himalajasvæðið sem haldið var í Bútan fyrr í þessum mánuði, sem og þjálfun ungra indverskra jöklafræðinga á Íslandi og áframhaldandi samstarf ríkjanna í nýtingu jarðhita.