Veftré Print page English

Jarðhitasamvinna. Orkuráðherra Frakklands


Forseti tekur þátt í sérstökum fundi sem Ségolène Royal, orku- og umhverfisráðherra Frakklands, efndi til í Abu Dhabi þar sem rætt var um myndun alþjóðlegs bandalags um jarðhita, Global Geothermal Alliance. Orkuráðherra Frakka áformar að beita sér sérstaklega fyrir aukinni nýtingu jarðhita og efna til sérstakrar kynningar á kostum hans í tengslum við loftslagsráðstefnuna sem haldin verður í París síðar á þessu ári.