Veftré Print page English

Hitaveituframkvæmdir í Kína og Asíu


Forseti á fund í tengslum við Heimsþing hreinnar orku, sem haldið er í Abu Dhabi, með Hauki Harðarsyni, stjórnanda Orku Energy, og Fanglu Wang, framkvæmdastjóra kínverska fjárfestingarsjóðsins CITIC Capital um þróun hitaveituverkefnanna í Kína og gildi þeirrar reynslu fyrir hitaveituframkvæmdir í öðrum Asíulöndum. Vaxandi áhugi er á hinum fjölþættu möguleikum á því að nýta jarðhita, bæði í þágu orkuframleiðslu sem og ylræktar og matvælaframleiðslu, og byggja í þeim efnum á hagnýtri reynslu Íslendinga.