Veftré Print page English

Heillaóskir til Jóhanns Jóhannssonar


Forseti sendi í dag heillaóskir til Jóhanns Jóhannssonar tónskálds í tilefni af Golden Globe verðlaununum og tilnefninga til Oscars verðlaunanna og og BAFTA verðlaunanna. Í kveðjunni segir m.a. að Íslendingar samgleðjist honum innilega enda sé árangur hans mikilvæg hvatning til íslenskra tónlistarmanna, sérstaklega unga fólksins sem dreymi um að sigra heiminn um leið og það varðveiti íslenskar rætur.