Veftré Print page English

Samstarf við Japan


Forseti á fund með sendiherra Japans á Íslandi, Mitsuko Shino, um samstarf landanna á ýmsum sviðum, gagnkvæm viðskipti í áraraðir sem og aukinn áhuga Japana á þróun Norðurslóða en sérstök sendinefnd frá landinu tók þátt í Hringborði Norðurslóða í fyrra. Mitsuko Shino er fyrsti sendiherra Japans gagnvart Íslandi sem hefur aðsetur í Reykjavík og var einnig fjallað um reynslu hennar af landi og þjóð.