Íþróttir fatlaðra
Forseti á fund með formanni og stjórnendum Íþróttasambands fatlaðra um væntanlegt heimsmót, Special Olympics, íþróttaleikja seinfærra og þroskaheftra. Áætlað er að um 40 keppendur fari frá Íslandi en forseti hefur sótt þrjú önnur heimsmót Special Olympics. Einnig var fjallað um starfsemi sambandsins og fjölmörg
verkefni á næstu misserum. Fatlað íþróttafólk hefur tekið öflugan þátt í alþjóðlegum mótum, bæði í Evrópu og á heimsvísu.