Schwarzmann styrkir
Forseti er viðstaddur athöfn í London þar sem ýtt var úr vör námsstyrkjum sem kenndir eru við Steve Schwarzmann og ætlað er að styrkja námsmenn frá Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku til náms í Kína. Tilgangurinn er að efla skilning og þekkingu á kínversku samfélagi í ljósi aukins mikilvægis landsins í efnahagslífi og heimsskipan. Fjölmargir háskólar víða um heim munu eiga aðild að þessu nýja kerfi en kennslan mun fara fram við einn helsta háskóla Kína.