Veftré Print page English

Nýting gervihnatta á Norðurslóðum


Forseti á fund með Barbara Ryan, stjórnanda alþjóðlegra samtaka um aukna nýtingu gervihnatta til eftirlits með þróun umhverfis og náttúru á Norðurslóðum, Group on Earth Observations. Rætt var um frekari þróun samstarfs á þessu sviði en sérstök málstofa var um þetta efni á Arctic Circle þar sem stjórnendur bandaríska fyrirtækisins Planet Labs kynntu þróun þess á nýrri gervihnattatækni sem gæti nýst almenningi og byggðarlögum, stórum sem smáum. Mynd.