Veftré Print page English

Sendinefnd Kína á Arctic Circle


Forseti á fund með fjölmennri sendinefnd Kína á Arctic Circle en hún er skipuð fulltrúum stjórnvalda, vísindastofnana og skipafélagsins 
COSCO, stærsta skipafélags heims. Rætt var um framlag Kínversku heimskautastofnunarinnar til rannsókna á bráðnun íss og jöklum á 
Norðurslóðum, undirbúning COSCO undir aukna vöruflutninga um norðurleiðina og þátttöku Kína í næstu þingum Arctic Circle. Mynd.