Veftré Print page English

Loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna


Forseti á fund með Christiana Figueres, framkvæmdastjóra Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Framework Convention on Climate Change, en samningar ríkja heims um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum fara fram á vegum hennar. Christiana Figueres var aðalræðumaður á sérstökum fundi Arctic Circle um bráðnun íss á Norðurslóðum og loftslagsbreytingar. Á fundi hennar og forseta var einkum rætt um hvernig framlag vísindastofnana, sem fást við Norðurslóðarannsóknir, gæti styrkt grundvöll væntanlegra samninga um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Mynd.