Fulltrúar frumbyggja í Kanada
Forseti á fund með forystumönnum samtaka frumbyggja í Kanada sem sækja Arctic Circle. Rætt var um mikilvægi þess að reynsla, hagsmunir og framtíðarsýn frumbyggja væri leiðarljós í umræðum um framtíð Norðurslóða. Efla þyrfti þátttöku fulltrúa samfélaga frumbyggja í stefnumótun og alþjóðlegri umræðu. Sendiherra Kanada á Íslandi, Stewart Wheeler, sat einnig fundinn. Mynd.