Arctic Circle. Móttaka í Listasafni Reykjavíkur
Forseti flytur ávarp í móttöku Arctic Circle sem haldin er í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Móttakan er haldin fyrir þátttakendur í alþjóðaþingi Arctic Circle en setningarathöfn þess verður að morgni næsta dags. Í ávarpinu lagði forseti áherslu á mikilvægi mannlegra samskipta, vináttu og gagnkvæms trausts sem jafnan hefði sett svip sinn á mannlíf og menningu Norðurslóða. Sú arfleifð væri mikilvæg forsenda þess að hin vaxandi alþjóðlega þátttaka í þróun Norðurslóða skilaði jákvæðum árangri.