Veftré Print page English

Lisa Murkowski öldungadeildarþingmaður


Forseti á fund með Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmanni í Bandaríkjunum, og sendinefnd hennar um Arctic Circle - Hringborð Norðurslóða en hún situr í heiðursráði þess og var meðal hvatamanna að stofnun Hringborðsins á sínum tíma. Fjallað var um þann árangur sem Arctic Circle hefur náð, hina víðtæku alþjóðlegu þátttöku í þingum þess og hvernig þessi vettvangur getur nýst til að skýra áherslur Bandaríkjanna í væntanlegri formennsku þeirra í Norðurskautsráðinu. Murkowski þakkaði Íslendingum sérstaklega fyrir framgöngu þeirra í eflingu þessa nýja vettvangs umræðu og stefnumótunar í málefnum Norðurslóða. Mynd.