Veftré Print page English

Sendimaður Mónakófursta


Forseti á fund með Patrick Van Klaveren, sendimanni Mónakófursta Alberts II, á alþjóðaþingi Arctic Circle - Hringborðs Norðurslóða, en Albert fursti situr í heiðursráði Hringborðsins og hefur stutt stofnun þess frá upphafi. Rætt var um áhuga furstans á málefnum Norðurslóða og þátttöku hans í baráttunni gegn loftslagsbreytingum sem og framlag Mónakóstofnunarinnar til margvíslegrar starfsemi á þessum vettvangi. Mynd.