Veftré Print page English

Sendinefnd frá Singapúr


Forseti á fund með sendinefnd frá Singapúr sem sækir Arctic Circle - Hringborð Norðurslóða, en hana skipa háttsettir fulltrúar utanríkisráðuneytis landsins. Rætt var um aukinn áhuga Singapúrs á málefnum Norðurslóða, m.a. vegna hættunnar á hækkun sjávarborðs í kjölfar loftslagsbreytinga. Þá bjóða strjórnvöld í Singapúr Arctic Circle að halda ráðstefnu í Singapúr á næsta ári í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um málefni heimshafanna. Mynd.