Námsflokkar Reykjavíkur
Forseti tekur á móti hópi frá Námsflokkum Reykjavíkur sem sótt hefur sérstakt námskeið til að undirbúa fólk undir þátttöku í atvinnulífinu á nýjan leik. Rætt var um sögu Bessastaða og skoðaðar minjar um fyrri tíð, fornleifar og ýmsa gripi sem borist hafa á lýðveldistímanum.