Atvinnulíf. Ísland og Norðurslóðir
Forseti situr fyrir svörum á hádegisverðarfundi sem haldinn er á vegum Lundúnadeildar Young Presidents Organisation en það eru alþjóðleg samtök stjórnenda fyrirtækja á ýmsum sviðum efnahagslífs. Rætt var um þróun Norðurslóða, nýtingu auðlinda og nýjar siglingaleiðir, breytta stöðu Íslands, þróun hreinnar orku sem og lærdómana af glímu Íslendinga við fjármálakreppuna. Vefur samtakanna.