Veftré Print page English

Dómnefnd Zayed orkuverðlaunanna


Forseti stýrir fundi dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna, Zayed Future Energy Prize, sem haldinn er í Abu Dhabi. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: fyrir ævistarf; fyrir forystu fyrirtækis á alþjóðavísu; til almannasamtaka; til smárra fyrirtækja; og loks til framhaldsskóla í öllum heimsálfum. Þau eru veitt fyrir nýsköpun og forystu um nýtingu hreinnar orku og er verðlaunaféð samtals fjórar milljónir Bandaríkjadala. Nánari upplýsingar um verðlaunin, skipan dómnefndar og verðlaunahafa má nálgast á heimasíðu þeirra.