Nýting jarðhita í Kína
Forseti á fund með Hauki Harðarsyni, stjórnanda OrkaEnergy, sem hefur í samstarfi við kínverska fyrirtækið Sinopec unnið að uppbyggingu á annað hundrað hitaveitna í Kína. Fjallað var um áhuga kínverskra stjórnvalda á víðtækari samvinnu við Ísland á sviði jarðhita, m.a. í ylrækt og á fleiri sviðum. Þá getur nýting jarðhita í landinu einnig orðið grundvöllur að uppbyggingu gagnavera.