Veftré Print page English

Sjónverndardagurinn


Forseti sækir athöfn á Barnaspítalanum þar sem Lionshreyfingin afhendir Landspítalanum tvö tæki að gjöf og ýtt er úr vör alþjóðlegum sjónvarnardegi Lionshreyfingarinnar. Hreyfingin hefur í áratugi stutt baráttu gegn blindu og stuðlað að augnlækningum víða um veröld. Í ávarpi þakkaði forseti Lionshreyfingunni fyrir margvíslegt framlag hennar til íslensks samfélags og fyrir að vera öflugur fulltrúi Íslands á alþjóðlegum vettvangi hreyfingarinnar.