Veftré Print page English

WWF


Forseti á fund með Carter Roberts, stjórnanda alþjóðlegu umhverfisverndarsamtakanna WWF, um þátttöku þeirra í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, í þágu víðtæks samstarfs um verndun náttúru og umhverfis Norðurslóða. Einnig var fjallað um þátttöku WWF í samstarfsvettvangi um bráðnun jökla og vatnsbúskap á Himalajasvæðinu en hann er byggður á árangri málþinga sem haldin hafa verið á Íslandi og á Indlandi á undanförnum árum. Ákveðið hefur verið að næsti áfangi þess samstarfs verði ráðstefna í Bútan í byrjun næsta árs í boði þarlendra stjórnvalda.