Veftré Print page English

Forseti Tansaníu


Forseti á fund með forseta Tansaníu, Jakaya Kikwete, um nýtingu jarðhita í Austur Afríku, hvernig tækniþekking og reynsla Íslendinga gæti nýst Tansaníu til að byggja upp jarðvarmaver. Einnig var fjallað um framlag Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna til að efla þekkingu í löndum Afríku og Asíu. Forseti Tansaníu lýsti ennfremur áhuga á að heimsækja Ísland, t.d. í fyrirhugaðri ferð sinni til Norðurlanda á næsta ári.