Veftré Print page English

Málþing Charlie Rose


Forseti tekur þátt í málþingi um alþjóðamál og nýsköpun í vísindum og tækni sem bandaríski sjónvarpsmaðurinn og þáttastjórnandinn Charlie Rose efnir til í Aspen. Meðal þátttakenda eru fjölmargir forystumenn úr bandarískum stjórnmálum og viðskiptalífi, frumkvöðlar og vísindamenn, stjórnendur háskóla sem og forystumenn alþjóðlegra stofnana og fyrirtækja. Málþingið stendur í tvo daga.