Veftré Print page English

Fjölskylduhjálpin. Sjálfboðaliðar


Forseti heimsækir Fjölskylduhjálpina og ræðir við stóran hóp sjálfboðaliða frá Bandaríkjunum sem hafa undanfarna daga endurbætt húsakynni Fjölskylduhjálparinnar. Um hundrað sjálfboðaliðar hafa tekið þátt í þessu starfi nú. Forseti þakkaði þeim í ávarpi fyrir framlag þeirra og færði þeim þakkargjöf frá Fjölskylduhjálpinni. Aðastaða Fjölskylduhjálparinnar hefur batnað mjög og stækkað á undanförnum misserum og hefur framlag sjálfboðaliðanna gert hana enn betri.