Atvinnulíf og Norðurslóðir
Forseti á fund í húsakynnum Háskólans í Reykjavík með fulltrúum fjölda íslenskra fyrirtækja sem taka þátt í mótun Hringborðs Norðurslóða, dagskrá og áherslum ásamt því að skipuleggja þátttöku starfsmanna sinna og annarra. Norðurslóðir fela í vaxandi mæli í sér fjölþætt tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf enda munu fulltrúar frá helstu forysturíkjum í efnahagslífi Evrópu og Asíu ásamt fulltrúum frá Norðurskautsríkjunum taka þátt í Hringborðinu.