Veftré Print page English

Sendiherra Frakklands


Forseti á fund með sendiherra Frakklands á Íslandi Marc Bouteiller, sem senn lætur af störfum, um vaxandi samvinnu landanna, m.a. í kjölfar opinberrar heimsóknar forseta til Frakklands á síðasta ári. Rætt var um mikinn áhuga Frakklands á Norðurslóðum, uppbyggingu frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði, vinabæjasamstarf ýmissa bæjarfélaga á Íslandi við bæjarfélög í Frakklandi sem og kynningu á sögu samskipta Íslands og Frakklands á fyrri öldum.