Veftré Print page English

Jarðfræðinemar frá Utah


Forseti tekur á móti hópi jarðfræðinema frá Ríkisháskólanum í Utah í Bandaríkjunum en þeir eru í námsferð á Íslandi. Rætt var um náttúru Íslands, eldfjöll, jökla og loftslagsbreytingar ásamt sögu íslensku landnemanna í Utah og tengsl þeirra við Ísland.