Veftré Print page English

Indland. Norðurslóðir. Himalajasvæðið


Forseti á fund með Ashok Das, sendiherra Indlands á Íslandi, þar sem rætt var um þátttöku Indlands í þróun samstarfs á Norðurslóðum en í fyrra varð Indland áheyrnarríki að Norðurskautsráðinu. Einnig var fjallað um undirbúning að Arctic Circle þinginu í haust, væntanlegan fund í Bútan þar sem fjallað verður um samstarf ríkja á Himalajasvæðinu, einkum með tilliti til rannsókna á jöklum og vatnsbúskap. Sá fundur verður í framhaldi af fyrri fundum sem m.a. voru haldnir á Íslandi.