Veftré Print page English

Atvinnulíf og Norðurslóðir


Forseti á fundi með Steinþóri Pálssyni bankastjóra Landsbankans og Kolbeini Kolbeinssyni forstjóra Ístaks um þróun atvinnulífs og framkvæmda á Norðurslóðum, þátttöku forysturíkja í efnahagslífi Evrópu og Asíu í þróun svæðisins, tækifæri íslensks atvinnulífs með þátttöku í samræðum og samstarfi á þessu sviði. Einnig var fjallað um Hringboð Norðurslóða, Arctic Circle, en þing þess verður haldið á Íslandi í haust.