Veftré Print page English

Bretland og Norðurslóðir


Forseti flytur ræðu og svarar fyrirspurnum um þróun Norðurslóða á morgunverðarfundi í Walbrook Club í fjármálahverfi Lundúna. Sérstaklega var fjallað um þátttöku forysturíkja í Evrópu og Asíu, áheyrnaraðild þeirra að Norðurskautsráðinu og framlag Bretlands á þessu sviði, bæði hvað varðar vísindalegar rannsóknir, stefnumótun, auðlindanýtingu og siglingar.