Veftré Print page English

Forseti Xinhua fréttastofunnar


Forseti á fund með Li Congjun, forseta Xinhua fréttastofunnar, og sendinefnd starfsmanna fréttastofunnar um vaxandi áhuga í Kína á fréttum frá Íslandi og Norðurslóðum en fréttastofan hefur ákveðið að hafa sérstakan fréttaritara starfandi á Íslandi. Fjallað var um þróun samfélags og efnahagslífs á Íslandi á undanförnum áratugum, nýtingu hreinnar orku og samvinnu við Kína á því sviði sem og samstarf á sviði rannsókna.