Veftré Print page English

Singapúr og Norðurslóðir


Forseti á fund með sendiherra Singapúrs á Íslandi, T. Jasudasen, um áframhaldandi þátttöku Singapúrs í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, en á fyrsta þingi Hringborðsins kynnti sendinefnd frá Singapúr sjónarmið þeirra og fyrirætlanir gagnvart Norðurslóðum. Til skoðunar er að Arctic Circle efni á næsta ári til funda í Singapúr í samvinnu við þarlend stjórnvöld um þátttöku þjóða í Asíu í rannsóknum og þróun Norðurslóða. Þá er einnig til skoðunar að Singapúr styrki unga frumbyggja á Norðurslóðum til náms og starfsþjálfunar.