Veftré Print page English

Sendiherra Venesúela


Forseti á fund með  hr. Jose de Jesus Sojo Reyes, sendiherra Venesúela, sem senn lætur af störfum. Rætt var um möguleika á auknum tengslum landanna á sviði menningar og lista, einkum tónlistar sem og áhuga á að virkja jarðhita í Venesúela. Einnig var rætt um þróun efnahagslífs og stjórnmála í landinu á undanförnum misserum sem og samvinnu þess við önnur ríki í rómönsku Ameríku.