Veftré Print page English

Pallborðsumræður um Norðurslóðir


Forseti tekur þátt í pallborðsumræðum um Norðurslóðir á alþjóðaþinginu International Economic Forum of the Americas sem haldið er í Montréal. Meðal annarra þátttakenda í umræðunum voru Hans Kristian Olsen, framkvæmdastjóri Nunaoil á Grænlandi, Jens-Peter Saul, framkvæmdastjóri Ramboil, og Wendy Watson-Wright, sérfræðingur í málefnum úthafanna hjá UNESCO.