Veftré Print page English

Alþjóðaþing um sjálfbæra orku. Lokafundur


Forseti flytur ræðu á lokafundi alþjóðaþings um hreina orku sem haldið er í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Í ræðunni áréttaði forseti að nú þegar væri til reiðu tækni á sviði jarðhita, sólarorku og vindorku sem gæfi heimilum, þorpum, héruðum og borgum kleift að breyta orkunýtingu. Mikilvægt væri að gera lausnir og áætlanir ekki of flóknar og að virkja vilja og getu fólksins. Þingið hefur sótt fjöldi forystumanna á alþjóðavettvangi, sérfræðingar og stjórnendur fyrirtækja.