Veftré Print page English

Sjálfbær orka. Heimsskýrsla 2014


Forseti er viðstaddur útgáfu á nýrri heimsskýrslu um nýtingu hreinnar orku, Renewables 2014 Global Status Report. Athöfnin fer fram í höfuðstöðvum fastanefndar Þýskalands hjá Sameinuðu þjóðunum að viðstöddum fjölda áhrifamanna á sviði hreinnar orku. Um 500 fræðimenn og sérfræðingar hafa unnið að gerð skýrslunnar og rekur hún þann margvíslega árangur sem náðst hefur í aukinni nýtingu hreinnar orku eftir löndum og heimshlutum.