Björgunin í Vöðlavík
Forseti tekur á móti fulltrúum samtaka og stofnana og öðrum sem tengdust björgunarafrekinu í Vöðlavík 1994 en í síðustu viku var afhjúpaður minnisvarði um það afrek í Vöðlavík. Meðal gesta var Gary Copsey, sem var í áhöfn björgunarþyrlu varnarliðsins, sem og fulltrúar heimamanna, björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar.