Veftré Print page English

Ungir athafnamenn frá Kína. Sjávarútvegur


Forseti tekur á móti Björgu Finnbogadóttur og forystufólki samtaka ungra athafnamanna í Kína sem jafnframt veita forystu einu af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum Kína. Stefnt er að heimsókn hóps slíkra forystumanna til Íslands á næsta ári, aðallega frá Hong Kong. Einnig var fjallað um þróun sjávarútvegs á Íslandi, eftirlit með sjálfbærum veiðum og beitingu upplýsingatækni í þágu ábyrgs sjávarútvegs og fiskvinnslu.