Veftré Print page English

Samningastofnun Harvard


Forseti á fund með Lawrence Susskind og fleiri forystumönnum Samningastofnunar Harvard háskóla, Program on Negotiation, sem aðrir háskólar á Bostonsvæðinu taka einnig þátt í. Rætt var um fjölmörg verkefni sem kalla á fjölþætta samninga og samstarf á Norðurslóðum, m.a. í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda, fiskveiðar, siglingar og ferðaþjónustu. Samningastofnunin hefur áhuga á þátttöku í Hringborði Norðurslóða sem haldið verður í Hörpu í haust.