Veftré Print page English

Hringborð Norðurslóða


Forseti á fund með Alice Rogoff sem ásamt honum er einn af stofnendum Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle. Rætt var um árangurinn af fyrsta þingi hringborðsins, helstu efnisþætti á öðru þingi þess sem haldið verður í Hörpu í lok október, sem og þá stefnumótandi ákvörðun að miðstöð hringborðsins og árlegt þinghald verði framvegis á Íslandi. Hliðarfundir verða þó haldnir í öðrum löndum, m.a í Bandaríkjunum á næsta ári þegar þau taka við formennsku í Norðurskautsráðinu.